|
Your Guide to
TOURS & ACTIVITIES |
 |
Hvar komast ferðamenn í hestaferðir eða hvalaskoðun? Hvernig er best að eyða degi í Reykjavík? Hvert er best að leita eftir bílaleigubíl? Hvenær eru sundlaugarnar í Reykjavík opnar? Í kaflanum sem er á bls. 108-141 í Visitor's Guide eru upplýsingar um fjölda valinna fyrirtækja, sem m.a. bjóða upp á skoðunarferðir, hestaferðir, hvalaskoðun, bílaleigu, jeppaferðir, flugferðir og líkamsrækt. Einnig eru þar:
- Upplýsingar um opnunartíma og aðstöðu allra sundlauga í Reykjavík.
- Sérstakt kort yfir útivistarsvæðið í Laugardal.
- Áhugaverðar greinar um íslenskt veðurfar, íslenska hestinn, fuglalíf, hvalaskoðun og fleira.
- Tillögur að áhugaverðum gönguleiðum í Reykjavík og því hvernig ferðamenn geta eytt deginum eftir fjárráðum.
- Upplýsingar um afþreyingu fyrir börn og fjölskyldur.
Í upplýsingamöppunni sem aðgengileg er í móttöku allra hótela og flestra gistiheimila á höfuðborgarsvæðinu er auk þess umfjöllun á 6 tungumálum og upplýsingar um þær ferðir sem eftirtöld fyrirtæki bjóða upp á: Kynnisferðir/Reykjavík Excursions, Íshestar, Reykjavík Whale Watching, Hreyfill/Bæjarleiðir, Bílaleigan Hertz, Mountain Taxi og Sundlaugar Reykjavíkur.
Tengill er á vefsíðu allra fyrirtækjanna í kaflanum á www.visitorsguide.is, undir flokknum "Your Guide to Tours and Activities".
Upplýsingar um þjónustuaðila
Í "Your Guide to Tours and Activities" eru auglýsingar og gagnlegar upplýsingar frá neðangreindum aðilum:
Undirstrikaðir aðillar merktir með einni stjörnu* eru einnig í upplýsingamöppum og með veglega skráningu á www.visitorsguide.is.
** Eru með sérstaka umfjöllun í Visitor's Guide
ATH! Allir þessir aðilar eru merktir á útdraganlegt götukort aftast í Vistor's Guide
|