| Your Guide to Culture |
 |
Hvaða söfn er að finna á Höfuðborgarsvæðinu? Hvað er þar til sýnis? Hvenær eru þau opin? Hvar geta ferðamenn keypt íslenska myndlist? Hvenær á árinu er Food & Fun-hátíðin, Vetrarhátiðin, Listahátíðin í Reykjavík, Alþjóðlega Kvikmyndahátíðin og Jazzhátíð Reykjavíkur?/VG08_kapa.jpg)
Svör við þessu eru í kaflanum sem er á bls. 82-107 í Visitor's Guide! Í Kaflanum er m.a.:
- Greinar um íslenska myndlist og bókmenntir, víkinga, fund Ameríku og þjóðargersemar Íslendinga.
- Upplýsingar um söfn á höfuðborgarsvæðinu og ábendingar um nokkur góð söfn á landsbyggðinni.
- Dagatal yfir helstu menningarviðburði og hátíðsdaga á Íslandi.
Í upplýsingamöppunni sem aðgengileg er í móttöku allra hótela og flestra gistiheimila á höfuðborgarsvæðinu er auk þess umfjöllun á 6 tungumálum og upplýsingar um Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperuna og Salinn í Kópavogi.
Efnisskrá vetrarins er hægt að skoða á vefsíðum þeirra: www.sinfonia.is, www.opera.is, www.salurinn.is.
Tengill er á vefsíðu allra fyrirtækjanna í kaflanum á www.visitorsguide.is, undir flokknum "Your Guide to Culture"
Í "Your Guide to Culture" eru auglýsingar og gagnlegar upplýsingar frá neðangreindum aðilum, en auk þess eru upplýsingar og umfjöllun um fleiri söfn á bls. 83-86.
Upplýsingar um þjónustuaðila
*Eru einnig í upplýsingamöppum
ATH! Allir þessir aðilar eru merktir á útdraganlegt götukort aftast í Visitor's Guide. |