|
|
Your Guide to
COUNTRYSIDE & ACCOMMODATION
Í kaflanum sem er á bls. 142-161 í Visitor’s Guide eru upplýsingar um áhugaverða áfangastaði utan Reykjavíkur og gististaði. Þar er m.a. að finna grein um hinn sívinsæla Gullna hring og gistimöguleika á landsbyggðinni, auk styttri umfjallanna um fjölda staða, s.s. Reykjanes, Flúðir, Borgarnes, Snæfellsnes og Vestmannaeyjar. Í kaflanum er einnig vegakort af Íslandi, þar sem vegalengdir milli helstu staða koma fram og hótel og aðrir þjónustuaðilar eru merktir inn.
Upplýsingar um þjónustuaðila
Á www.visitorsguide.is eru lengri útgáfur af greinum, umfjallanir um fleiri staði og myndagallerí frá fjölmörgum stöðum víðsvegar um landið.
Í kaflanum eru kynntir aðilar sem bjóða þjónustu sína á landsbyggðinni, svo sem:
-
Fjallað er um Akranes og helstu viðkomustaði ferðamanna á því svæði; Safnasvæðið á Akranesi, Akrafjall og ströndina á Langasandi.
-
Saltfisksetrið í Grindavík er kynnt, auk þess sem í kaflanum er grein um Reykjanes og áfangastaði á leiðinni milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur.
-
Umfjöllun um Norðurland og Akureyri og mælt með heimsókn á nokkra áhugaverða staði þar; Akureyrarkirkju, Listasafnið, skíðasvæðið í Hlíðarfjalli.
-
Allir ættu síðan að geta fundið gistingu við sitt hæfi á Icelandair hótelunum, Hringhótelunum, Fosshótelunum og Edduhótelunum (athugið þó að þau síðastnefndu eru aðeins opin á sumrin).
Undir flokkunum "Your Guide to Accomodation" og "Your Guide to Countryside" á vefsíðunni www.visitorsguide.is eru tenglar á vefsíður allra þessara fyrirtækja og fleiri.
ATH! Allir þessir aðilar eru merktir á kort í Visitor's Guide, ýmist á útdraganlegt götukort af Reykjavík aftast í bókinni, eða á Íslandskort á bls. 160-161.
|
|
|
|